Framkvæmdir á Fléttuvöllum 21

Fléttuvellir 21

11.04.2007 09:53:49 / Einar

Myndaalbúm

heil og sæl öllsömul

 Loksins eitthvað líf á þessari síðu, ég er búinn að setja inn myndaalbúm af Fléttuvöllunum, það er búið að steypa þakið þannig að nú er næst á dagskrá að loka húsinu svo hægt sé að byrja inni.

Ég ætla engu að lofa í sambandi við færslur því ég stend aldrei við það.

 

kv

Einar

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.06.2006 14:14:10 / Einar

Aldurinn Færist yfir

Heil og sæl

Haldiði að kallinn sé ekki orðinn 29 ára,  bara eitt ár í það að maður skelli sér á fertugsaldurinn.

Ég átti allaveganna afmæli núna á laugardaginn, nebbnilega 17 júni, hér áður fyrr var þetta bara algjör snilld maður gat alltaf haldið svaka djamm daginn áður því notabene það er alltaf frí daginn eftir,  alger snilld.  en eftir því sem árin færast yfir hefur þetta snúist yfir aðeins rólegra þema.  sérstaklega eftir að litlu sólskinsgeislarnir fæddust.  En afmælisdagurinn rann upp alveg yndislegur,  konan leyfði mér að sofa aðeins út en Ragnar var orðinn svo stressaður yfir því að pabbi væri ekki búinn að vakna við afmælissönginn og búinn að fá pakkann þannig að ég var vakinn um hálf tíu leytið með söng og pakka,  ég fékk náttúrulega morgunverð í rúmið og kaffi.  opnaði svo pakkan frá frúnni og krökkunum fékk flotta skyrtu, bol og Lethal Weapon safnið,  ekki slæmt, en konan segir á ég eigi eftir að fá eina gjöf í viðbót.

Við fórum svo niður á víðistaðatún að kíkja á tækin,  enda finnst Ragnari það ekki leiðinlegt,  við vorum þar í smá tíma og skemmtum okkur konunglega,  Ragnar hitti frænkur sínar Unni og Evu og fékk að fara með þeim heim,  honum tókst svo að semja við mömmu þeirra um að fá að gista þar um nóttina,  sem hann svo og fékk,  sem hentaði okkur alveg ágætlega þar sem við vorum á leiðinni í Brúðkaup um kvöldið til hans Hilmars frænda,.

Það var alveg rosalega flott Brúðkaupið hjá kallinum,  og á hann og Arnbjörg allar mínar bestu kveðjur fyrir frábæran dag,  og fannst okkur frúnni alveg yndislegt að fá að taka þátt í honum með þeim.

Svo daginn eftir var komið að því að bjóða nánasta hringnum heim í kaffi,  Bettý vaknaði alveg eldsnemma um morguninn og skellti á nokkrar kökur,  svo ætluðum við að vera sniðug og grilla pylsur fyrir þá sem komu en að sjálfsögðu kláraðist gasið á grillinu,  er þetta ekki týpiskt og enginn varakútur á svæðinu,  þannig að pylsurnar hlutu hljóðlátan dauðdaga.  Það kíktu fullt af liði, Tengdó, mútta og pabbi, Erla,  Unnar og Helga,  og svo komu Rúnar og Hilmir Snær.  Það þótti Ragnari ekki amalegt,  en það endaði svona aðeins í rifrildi um dót en það er ekki fyrsta skipti sem gerist og örugglega ekki í það síðasta.

Svo erum við frúin á leiðinni til Köben í afslöppun um næstu helgi og hlakkar manni bara helv mikið til.

En læt þetta nægja í bili

kv

Einar


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 16:22:55 / Einar

Uppfærðar upplýsingar

Heil og sæl öllsömul,

Þá kemur maður því loksins í verk að skella einhverju inná vefinn,

Af húsbyggingum er allt rólegt að frétta,  við erum þó byrjuð.  Við erum búin að fá þjöppuprófið í gegn og það er byrjað að slá upp fyrir sökklunum er jafnvel búist við að það verði hægt að steypa í næstu viku.

Af familíunni er allt gott að frétta,  núna er maður bara að reyna að glápa eins mikið á Hm og hægt er. 

En annars er þetta bara vinna og aftur vinna nóg að gera á þeim vígstöðvum.

Annars erum við frúin að fara að skella okkur til Köben í næstu viku í smá afslöppunarferð,  enda verður gott að komast aðeins burt úr argaþrasinu, hérna heima.  Börnin voru svo heppin að fá gistingu hjá Ömmu og afa á Erluásnum þannig að þau verða sennilega vel dekruð þegar við komum til baka, 

En læt þetta nægja í bili

kv

Einar


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 11:24:47 / Einar

Köngulóarvefurinn ógurlegi

Heil og sæl

Ég var minntur á það að ég væri að falla í köngulóarvefinn ógurlega,  en maður verður nú að bæta úr því.

Af framkvæmdum er allt í rólega kantinumað frétta,  ég er búinn að vera að djöflast í því að ná sökkulteikningum í gegn ég er búinn að fá þær samþykktar,  og grunnurinn stóðst þjöppupróf, þannig að ég þarf að fara panta botnúttekt núna fljótlega eða um leið og ég fæ skýrsluna frá Rannsóknarstofnun byggingariðnarins, og þá er loksins hægt að byrja

Finally

en ég er orðinn svo svartsýnn að það hlýtur að koma eitthvað meira uppá áður en ég get byrjað. 

Annars er allt gott að frétta hérna á Klakanum það hefur verið ódæma veðurblíða síðastliðna daga slefað hátt í 20 gráður dag eftir dag. 

Við í fyrirtækinu héldum árshátíð okkar núna um Helgina í Glaðheimum og tókst hún vel í alla staði voru eitthvað um 130 manns á staðnum þannig að við erum orðinn ansi stór

en læt þetta nægja í bili

Au reviour

Einar


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 10:11:23 / Einar

Veikindi

Sæl og blessuð öllsömul

Það er víst orðið ansi langt síðan maður skrifaði síðast,   þannig að nú ætlar maður að reyna að bæta úr þessu.  

Af framkvæmdum er svosem fátt að frétta við erum farin að halda að það hafi verið álfabyggð í lóðinni hjá okkur því að ef eitthvað getur farið úrskeiðis þá gerir það það.  Grunnurinn átti að vera klár en sökum misskilnings hjá mér það þarf ég að ná í þjöppupróf á hann og hann náttúrulega stóðst það ekki þannig að ég þarf að hringja í bæjarbatteríið og kanna málið hvað ég þurfi að uppfylla í þeim málum,  svo vorum við búin að fá smiði sem hefðu jafnvel getað hent sökklunum upp fyrir páska en eftir að þetta þjöppupróf þá datt það upp fyrir þannig að við getum bara beðið (erum orðin ansi vön því), 

Ég hef reyndar verið veikur ansi mikið uppá síðkastið,  en allir aðrir í fjölskyldunni hafa svo sem sloppið,  konan segir reyndar að þetta sé vegna þess að ég taki mér aldrei veikindadag heldur sé bara veikur í vinnunni. 

En þá kemur maður að þessu sem kallast uppeldi ég var alltaf alinn upp við það að veikindi væru bara fyrir aumingja og ef maður gæti staðið þá ætti maður að mæta í vinnunna,  enda er það þannig að ég hef ekki tekið mér marga veikindadaga í gegnum tíðina ekki einusinni þegar maður fótbrotnaði eða handarbrotnaði,  mér finnst ekki tiltökumál að mæta í vinnunna með 39 stiga hita,  en svo kemur annað  mér dettur ekki í hug að senda Ragnar í leikskólann nema hann sé búinn að vera hitalaus heima í að lágmarki einn dag,  það er náttúrulega ekki farið að reyna á þetta með hana Kristjönu þar sem hún er nú bara að verða 9 mánaða.

En ég byrjaði á heilsubót í dag, ég byrjaði að taka Lýsi aftur,  þó svo að margt gott og slæmt sé sagt um það þá er ég þeirrar skoðunar að það geti ekki gert hlutina verri þannig að ég ætla að reyna að halda því áfram,

Enda eins og hann bróðir minn orðaði það í gær,  "ekki verður gamli svona mikið veikur ha Auli" 

kveð með þessum orðum

Einar (Sjúklingur)


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 16:03:05 / Einar

Liverpool

Góðan daginn öllsömul

Ég og konan skelltum okkur til Liverpool um Helgina til að horfa á leik,  fórum á Liverpool - Charlton,  

ég á bara eitt orð til að lýsa þessu

Þetta verður endurtekið seinna meir,  við setjum inn myndir af þessu síðar.  Við byrjuðum á því að fljúga beint til Liverpool á föstudaginn 3 mars,  og þann daginn vorum við bara að dúlla okkur í Liverpool að skoða, svo var tekið smá æfing í bjórlyftum um kvöldið enda ekki annað hægt þegar maður kaupir pind(hálfan líter) á 2 pund.  Svo daginn eftir var leikurinn.  Við vöknuðum rétt fyrir 10 svo maður náði að þrykkja í morgunverðinn egg, pylsur og beikon la traditional english breakfast,  svo var náttúrulega þrykkt á barinn,  á Parks bar sem er beint á móti Anfield,  það var ekki leiðinlegt að sjá Anfield í fyrsta skipti með eigin augum.  Svo á Parks hitti maður alla alvöru púllarana og þar var sungið og drukkinn bjór en samt ekki allt of mikið því ekki vildi maður missa af leiknum sökum ölvunar,  svo um hálf fimm var trítlað yfir á Anfield og komið sér í sætin.  Fengum þessi fínu sæti fyrir aftan markið beint á móti The Kop stúkunni.  Svo 3 mínutum fyrir leik þá byrjaði að óma í hátalarakerfi leikvangsins  You´ll never walk alone,  það lá við að maður táraðist,  tilfinningin var svo svakalega að því er eiginlega ekki hægt að lýsa,  menn verða bara að upplifa þetta sjálfir.  Svo hófst leikurinn hann var nú bara nokkuð góður við áttum að fá Vítaspyrnu í fyrri hálfleik, og svo skoraði Fowler mark í seinni hálfleik sem var svo dæmt af (óréttlátlega by the way var fullkomlega löglegt mark)  svo eftir leikinn var farið aftur yfir á Park til að bíða á meðan fólkið var að týnast heim,  það var svo náttúrulega tekið hraustlega á í Bjórlyftingum,  og skriðið uppá hótel um 4 leytið um nóttina.

Svo um hálftíu leytið byrjaði the cleaning crew að angra mann you must check out at eleven þau komu á svona hálftímafresti og minntu okkur á þetta, þannig að þegar við tékkuðum okkur út um 11 leytið vorum við svona hálftussuleg,  þannig að það var þrykkt á KFC og fengið sér Zinger meal,  og svo skellt sér í skoðunarferð um Anfield.  Við fengum að sjá búningsklefana fórum inná völlinn og skoðuðum okkur um þar

Svo var komið að því seinna um daginn að fljúga heim og reyndist það vera alveg svakalegt ævintýri.  Við vorum mætt út á flugvöll um 4 leytið það tók ekki nema 2 og hálfan tíma að tékka okkur inn,  ca 150 stykki,  svo var ekki búið að fylla á vélina þannig að við þurftum að bíða úti í vél á meðan það var klárað,  svo kom í ljós að þau höfðu tékkað inn 156 farþega en það voru bara talin 155 um borð þannig að eftir um klukkutíma viðræður þá þurfti að taka allar töskur úr vélinni og raða þeim á flugbrautina og svo fóru 3 sætaraðir í einu út og báru kennsl á töskurnar sínar þetta tók um það bil klukkutíma í viðbót en til að gera langa sögu stutta þá vorum við komin heim um það bil 2 um nóttina.

En læt þetta nægja að bili

kv

Einar


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 14:09:56 / Einar

Klukk

Sæl og blessuð öll sömul

Ég var víst klukkaður af konunni þannig að mar verður nú að standa sig

 

4 Sjónvarpsþættir sem ég elska að horfa

Lost - Þettta eru bara svakalegir þættir sem ég reyni ekki að missa af

Threshold - Þessir þættir eru bara tær snilld,

SIMPSONS - Þarf að segja eitthvað meira bara argandi snilld

House - Þetta er alveg yndislegur þáttur,  House er frábær missti aldrei af honum en hann er því miður ekki á dagskrá eins og er.

4 Kvikmyndir sem eru alveg snilld

Black Hawk Down - Þetta er ein besta stríðsmynd sem ég hef á ævinni séð ein af fáum sem maður sér sem er nokkuð laus við væmni.

Smokey and the Bandit Burt Reynolds uppá sitt besta,  þetta er bara frábær cult mynd,

LOTR Serían Þetta er allra flottasta ævintýramyndin sem ég hef séð,  Aragorn, Frodo, og allir hinir,  þetta eru myndir sem ég get horft aftur og aftur á.

A night at the Roxbury -  Ég get endalaust hlegið að þessir Chris Kattan og Will Ferrel fara að kostum

4 Heimasíður sem ég heimsæki daglega

Mbl.is- ég fer þarna mörgum sinnum á dag enda verður maður að fylgjast með

Landsbankinn.is – fer þarna inn til að skoða hryllingsmyndir aka bankareikningana mina

Fotbolti.net -  Ég er náttúrulega fótboltafíkill af verstu gerð og fæ aldrei nóg af fótboltaslúðri

Barnaland.is -  Kíki þarna á krílín mín og kríli vina og kunningja

4 Uppáhaldsmáltíðir

T-BONE Steik Grilluð ala Einar alger snilld

 Humarsúpan Mín -  Eftir að ég datt niður á þessa uppskrift þá hef ég ekki smakkað betri humarsúpu neins staðar svo einfalt er það (smá Egó)

KFC Zinger – Þetta er besti þynnkumatur í heimi

 Hamborgarhryggur með öllu meðlæti- Jólamaturinn ekkert topparhann

 

4 geisladiskar sem ég get hlustað endalaust á

 Metallica- Black Album  þetta er bara snilld og aftur snilld  Sssssnnnnnniiiiiilllllldddddd.

Guns N Roses – Best of  Það er alltaf stutt í þennan disk og hann fer ansi oft í spilarann.

The Darkness  - One way ticket to hell  þessir menn eru snillingar,  gaman að sjá svona

Audioslave Þetta er bara massívt band

 

 Og svo að lokum

4 aðilar sem ég ætla að klukka

 Bjöggi

Rúnar

Hjalti Kristinn

Ketill

 

Kv

Einar


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.01.2006 17:39:27 / Einar

Fréttir Fréttir

Heil og sæl öllsömul

Við vorum á fund með Arkitektunum núna um helgina,  og fór hann vel,  vorum við að fara yfir innra skipulagið,  núna er bara verið að vinna í því að ná sér í meistarana svo maður geti tekið grunninn,  Það er verið að reikna út burðarþolið og þegar það er klárt,  er ekkert til vanbúnaðar að byrja uppslátt,  Við erum búin að semja við Sparra um að slá upp húsinu,  ég á nú ekki von á að þeir meistarar klikki nú því enda snillingar þar á ferð. 

Af okkur fjölskyldunni er svo sem ekkert margt að frétta,  hún Kristjana er með einhverja smá magakveisu að við höldum en hún gæti svosem verið að taka tennur, Ragnar Dagur er alltaf jafn kátur "morgunhress eins og Pabbi sinn",:haha: .

Hann Unnar bróðir skellti sér til Köben núna um helgina þannig að ég er að bossast á verkstæðinu,  gengur svosem þokkalega enda alltaf nóg að gera. 

En læt þetta nægja í bili,

Einar


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2006 10:41:02 / Einar

Teikningar Samþykktar

Það er búið að samþykkja teikningarnar

 þannig að við erum í skýjunum þessa dagana,  nú er bara að fara koma þessu af stað. 

Annars er svosem fullt búið að gerast síðan í September hmmmm (smá ritstífla),  ég er búinn að vera að vinna alveg helling,  var meðal annars með alla yfirumsjón í stálvirkinu sem kom yfir Kópavogsgjánna ekki nema 300 tonn af stáli,  helvíti spennandi pakki búinn að læra mjög mikið af því.  Svo er náttúrulega alltaf nóg annað að gera í vinnunni,  enda er þetta orðin um það bil 150 manna vinnustaður með öllum dótturfyrirtækjum. 

Við fjöldskyldan skelltum okkur til Danmerkur yfir áramótin,  vorum þar í góðu yfirlæti hjá Fanney og Rúnari og svo hjá Róbert og Selmu.  Þetta var önnur tilraun okkar að fara þangað.  Við reyndum fyrst að fara í lok okt en þá veiktist ég heiftarlega á flugvellinum og þurftum við að snúa við heim aftur,  svo flugum við feðgarnir út 28 des en Bettý og Kristjana urðu eftir þar sem Kristjana var orðin eitthvað slöpp, og eftir nokkrar læknisferðir tókum við þá erfiðu ákvörðun að hún yrði eftir heima á klakanum,

Þannig að Bettý kom út til okkar þann 30 des,  hún lenti sko í svakalegum hremmingum,  hún lenti fyrst í 7 tíma seinkun úti á flugvelli,  þannig að þegar hún komst loksins til Köben þá hafði hún misst af lestinni og varð að bíða til 5 um morguninn til að taka lest til Horsens,  en þegar uppi var staðið var hún búinn að vera 17 tíma á ferðalagi síðan hún mætti út á flugvöll,  alveg dásamlegt eða þannig. 

En þarna er ég búinn að stikla á mjög stóru sem hefur gerst síðastliðna 4 mánuði,  en nú er ætlunin að vera duglegri að skella inn upplýsingum í sambandi við bygginguna,

Gleðikveðjur

Einar (Letibloggari)


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.09.2005 18:12:48 / Einar

Djö leiðindi

:^)  Við fengum endursendar teikningar frá bænum þar sem það voru einhver smáatriði að allaveganna finnst mér það  en þeir eru að tala um að húsið sé of hátt,  og vanti ýmsar málsetningar inn,  nota bene á réttar teikningar því þessar málsetningar eru inni, 

En  þetta getur víst gerst,

segi frá meiru seinna

Einsi Letibloggari


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.08.2005 11:21:08 / Einar

Hitt og þetta

Komiði sæl og blessuð,

Af okkur kjarnafjölskyldunni er allt gott að frétta,  litla sefur vel en hefur tekið uppá því að fá oggulítið í magann á nóttunni þannig að við sofum ekki alveg eins vel og við gætum en ég sef nú víst betur,  allaveganna segir konan það að ég hrjóti bara,  hehe

En af byggingamálum er lítið að frétta,  Teikningarnar eru komnar inn til skipulagsfulltrúa og eru búnar að vera þar á aðra viku lítið um að vera þar held ég hljóta að vera sumarfrí þarna,  en í hverfinu er allt að fara af stað,  það er búið að taka nokkra grunna og byrjað að steypa upp nokkur hús, 

ætlaði bara að kvitta fyrir mig,

kv

Einar


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.08.2005 23:11:40 / Einar

Orðinn Pabbi í annað sinn

Heil og sæl öllsömul

Lítil prinsessa fæddist kl 00:34 7 ágúst,   15 merkur og 52 sm. 

:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D

Þið getið séð myndir á www.ragnardagur.barnaland.is

segi frá meiru seinna meir

kv

Einar ofurglaði


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.08.2005 07:21:18 / Einar

Ekkert að gerast

Góðan daginn

Það er búinn að vera róleg helgi hjá okkur, sennilega rólegasta Verslunarmannahelgi sem við konan höfum upplifað í mörg ár.  Barn nr 2 er ekkert að flýta sér í heiminn, þannig að við gerum ekkert nema að bíða og bíða og bíða,  en í versta falli kemur kúlubúinn 10 ágúst,  því þá er Bettý komin tvær vikur framyfir. 

Ég er kominn í vinnuna allaveganna næstu 2 daga, þar sem Brósi skellti sér til Frankfurt um Helgina og kemur ekki fyrr en annaðkvöld. 

Af húsbyggingum er það að frétta að teikningarnar ættu að vera á leiðinni í pósti til byggingafulltrúans frá honum Gaua,  og að öllu óbreyttu þá ættu þær að rúlla í gegn og vonandi þá hægt að fá graftrarleyfið í þessum mánuði og jafnvel ef vel gengur að klára grunninn þeas jarðvinnunna,

jæja

Over and out

kv

Einar (letibloggari)


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.07.2005 22:04:38 / Einar

Halló

Ég er bara að kvitta fyrir mig,  ég er búinn að vera í fríi þessa viku,  Ragnari til mikillar gleði,  við erum búnir að vera að bralla mikið saman.  Ég skellti mér svo í veiði á þriðjudaginn,  fór með Rúnari og Kedda  við fórum snemma um morguninn og fékk ég lánaðann veiðibílinn hans brósa,  það er ekki nema 2005 árgerð af Landcruiser 100 ekki slæmt.  Við fórum og keyptum okkur veiðileyfi í Þrastarlundi og fórum að veiða í Þingvallarvatni og Úlfljótsvatni,  veiðin gekk þokkalega lönduðum 6 stykkjum en því miður voru 4 of litlir þannig að við fleygðum þeim aftur út í en 2 voru þokkalegir.  Þetta var fínn dagur allir vel brenndir eftir hann en skemmtum okkur vel. 

Svo í dag byrjaði frúin að fá smá verki en þeir virðast vera hættir núna þannig að við verðum bara að halda áfram að bíða.

Í sambandi við bygginguna,  þá er Gaui að klára teikningarnar og sendir þær sennileg inn í næstu viku,  og þá verður fljótlega hægt að fara að byrja.

jæja

Kem með fleiri fréttir síðar meir

kv

Einar


» 81 hafa sagt sína skoðun

21.07.2005 17:42:30 / Einar

Heil og Sæl

Það heldur áfram þessi blíða hérna heima, það er orðið ansi erfitt að halda sér í vinnunni þessa dagana og líka að halda körlunum hérna,  ég held að þeim sé farið að finnast ég vera algjör harðstjóri,  En nú sit ég bara og bíð eftir að Gaui sendi mér undirritaðar teikningar svo ég geti farið með þær og skilað inn byggingarumsókninni okkar,  og þá fer boltinn að Rúlla. ´

:)Svo bíð ég náttúrulega alveg óþreyjufullur eftir því að eignast barn nr 2:)  ætla nú að fara að vona Bettýar vegna að fari nú að gerast fljótlega, þar sem hún er orðinn ansi þreytt.

Annars er ég á leiðinni í frí í næstu viku,  Trúið þið þessu.  Það verður fínt að slappa aðeins af heima með orkuboltanum (Ragnari) og konunni.

Eins og margir ykkar sem þekkja mig og Bettý þá erum við víst fótboltafíklar og styðjum að sjálfsögðu besta lið í heim :)LIVERPOOL:)  þannig að ég ákvað skella inn nokkrum linkum sem ég kíki á hvern einasta dag,

kv

Einar


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2